Akur

Íþróttafélagið Akur var stofnað 8. Desember 1974 og hét þá Íþróttafélag fatlaðra á Akureyri.Eins og nafnið bar með sér var það vettvangur fyrir fatlaða

Akur íþróttafélag

Íþróttafélagið Akur var stofnað 8. Desember 1974 og hét þá Íþróttafélag fatlaðra á Akureyri.Eins og nafnið bar með sér var það vettvangur fyrir fatlaða íþróttamenn á svæðinu. Þeir voru tregir til þátttöku fyrst í stað en þegar þeir fengust loks í gang voru þeir fljótir að skipa sér í forustu á mótum, bæði innanlands og erlendis.

Í mars 1979 stóð ÍFA fyrir fyrsta Íslandsmótinu í Boccia og Borðtennis fyrir fatlaða á Íslandi og höfum við átt keppendur á öllum Íslandsmótunum síðan og Íslandsmeistara á hverju ári.

 Nú er félagið opið öllum, fötluðum og ófötluðum sem vilja stunda þær greinar sem félagið býður uppá

Stjórn Akurs skipa nú:  Jósep Sigurjónsson, Elvar Thorarensen, Jón Heiðar Jónsson, Sigríður Þórunn Jósepsdóttir og Jón Heiðar Daðason.

 Íþróttafélagið Akur stundar nú eftirtaldar íþróttagreinar: Boccia, bogfimi, borðtennis, dans og frjálsar íþróttir auk vetraríþrótta. Félagið á einnig afreksmenn í nær öllum þessum greinum.  Bogfimiæfingar lágu niðri vegna aðstöðuleysis en fara nú hægt á stað og vex vonandi fljótt fiskur um hrygg.

 Félagið tekur þátt í nær öllum þeim mótum sem í boði eru innanlands, auk þess sem félagar fara á erlend mót.  Á yfirstandandi ári höfum við keppt á: Íslandsmóti í dansi, Íslandsmótum í frjálsum innan og utanhúss, Íslandsmóti í boccia einstaklings og sveitakeppni, Íslandsmóti ÍF í borðtennis, Íslandsmeistaramóti unglinga í borðtennis, Hængsmóti og norðurlandsmóti í boccia

 Akur hélt sitt fyrsta Grand Prix mót í borðtennis 27. mars 2010. Þar varð Jakob Jörgensen Akri sigurvegari í 1. flokki.  Í 2. flokki röðuðu Akursmennirnir, Garðar Gunnarsson, Magnús B. Kristinsson, Bjarki Búason og Hreiðar Hreiðarsson í fjögur efstu sætin.

 Á Íslandsmóti BTÍ sveitakeppni í febr. 2010 varð A-sveit Akurs í borðtennis Íslandsmeistari í 2. deild og þá um leið fyrsta sveit af landsbyggðinni til að öðlast sæti í 1. deild.  Sveitina skipa: Helgi Þór Gunnarsson, Jakob Jörgensen og Markus Meckl.

Tveir keppendur og fararstjóri frá Akri, þau Kolbeinn Jóhann Pétursson og Sigrún Björk Friðriksdóttir ásamt Sigríði Þórunni Jósepsdóttur í fararstjórn voru valin til þátttöku á Norðurlandamót í Boccia í Danmörku 14. – 17. maí 2010.  Hópurinn strandaði í Keflavík og komst ekki til Danmerkur vegna öskumengunar úr Eyjafjallajökli.

Akur átti 2 keppendur og fararstjóra á Evrópuleikum Spec. Ol. í Varsjá í Póllandi 18. – 24.sept. 2010.  Keppendurnir voru Sunna Jónsdóttir í borðtennis og Stefán Thorarensen í frjálsum auk Elvars Thorarensen fararstjóra í borðtennis.

 Að venju gefur félagið út eigin jólakort og selur ásamt korti frá Íþróttasambandi fatlaðra.

 Einnig fengum við veglega styrki frá ýmsum velunnurum okkar og ber þar hæst stór styrkur frá Samherja sem styrkti okkur rausnarlega þriðja árið í röð. Allt er þetta mikil lyftistöng fyrir félagið og heldur æfingagjöldum niðri auk þess að auðvelda rekstur og keppnisferðir. Sendum við hér alúðar kveðjur og þakklæti til allra sem taka vel á móti sölufólki okkar eða styrkja okkur á annan hátt.

 Jósep Sigurjónsson, formaður

Svæði

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf