
Í dag starfa á Bjargi 14 sjúkraþjálfarar auk ritara og framkvæmdastjóra. Einnig starfa hér 2 iðjuþjálfar og stoðtækjafræðingur frá Stoð hefur hér móttöku aðra hverja viku. Á svo fjölmennum vinnustað sem þjónar stóru svæði hefur komist á ákveðin verkaskipting milli sjúkraþjálfaranna og skiptist starfsemin í nokkur svið, auk þess sem boðið er upp á hópþjálfun fyrir fólk með stoðkerfisvanda og taugasjúkdóma, og vatnsleikfimi í Glerárlaug.
Þar sem staðurinn er rekinn af Sjálfsbjörg, kemur af sjálfu sér að fatlaðir og langveikir eru stór hluti af okkar skjólstæðingahóp, enda búum við að því að hafa afar góða aðstöðu og að-gengi til að taka á móti skjólstæðingum með miklar skerðingar, í góðri samvinnu við fer-liþjónustu fatlaðra á svæðinu. Tvö fjölbýlishús eldri borgara eru tengd húsinu, félagsþjónusta aldraðra er í kjallara þess og þjónustum við því einnig talsverðan fjölda eldri borgara.
Skjólstæðingahópur Bjargs er samt sem áður mjög fjölbreyttur því hér er, ásamt fyrrnefndu, allri almennri sjúkraþjálfun sinnt af kostgæfni. Á meðal sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa leynast nokkrar gamlar skíðakempur svo meðhöndlun skíðafólks og annarra íþróttamanna sést hér gjarnan. Þess utan hafa Klakarnir, útivistarklúbbur fatlaðra, aðsetur hér, undir stjórn Jóns Harðarsonar, sjúkraþjálfara og Önnu Maríu Malmquist, iðjuþjálfa (sjá www.klakarnir.is).
Einn sjúkraþjálfarinn okkar, Kristín Rós Óladóttir, hefur nú lokið framhaldsnámi við Háskólann í Bergen í Basic Body Awareness Therapy. Sú þekking sem hún er að koma með í hús er okkur dýrmæt viðbót við meðferð ýmissa skjólstæðinga okkar sem kljást við afleiðingar heilablóðfalla, heilaæxla eða taugasjúkdóma af ýmsu tagi.
Sjúkraþjálfun barna á Bjargi
Á Bjargi hefur verið
boðið upp á sjúkraþjálfun barna í mörg ár. Á undanförnum árum hefur þörfin fyrir sjúkraþjálfun
barna á þessu svæði farið vaxandi af ýmsum ástæðum. Ungbarnavernd er öflugri, læknar eru orðnir betur meðvitaðir um að
senda börn í sjúkraþjálfun ef upp kemur grunur um röskun á hreyfiþroska eða hreyfigetu og ábendingar frá leikskólum eru
tíðari. Nokkuð hefur verið um það að fjölskyldur barna með sérþarfir/hreyfihamlanir hafi flust á svæðið úr
nágrannasveitafélögum vegna þeirra þjónustu sem í boði er á Akureyri.
Nýr meðferðarsalur fyrir börn var tekinn í notkun á Bjargi í september 2009. Salurinn er einkar glæsilegur og barnvænn, sérstaklega útbúinn fyrir þjálfun barna. Hér geta börnin upplifað hreyfingu í gegnum leik t.d. klifrað í rimlum, sveiflað sér í rólu eða hengirúmi, fetað sig eftir jafnvægisslám o.s.frv.
Þarfir þeirra barna sem þurfa á sjúkraþjálfun að halda er mismunandi. Meðal annars eru hér börn í þjálfun vegna seinkunar í hreyfiþroska, önnur vegna stoðkerfisvandamála (t.d. gigtar- eða bandvefssjúkdóma) og enn önnur vegna hreyfihömlunar sem getur verið misalvarleg. Sjúkraþjálfarar barna eru í mikilli samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna, aðra sjúkraþjálfara eins og á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Endurhæfingu ehf í Kópavogi og á fleiri stöðum. Einnig er mikil samvinna við stoðtækjafræðinga. Sjúkraþjálfarar fara í skóla og leikskóla til að veita börnum sjúkraþjálfun þar og í sumum tilfellum fer þjálfunin fram bæði í skóla eða leikskóla og á Bjargi. Samvinna við kennara/leikskólakennara og umönnunaraðila í leik- og grunnskólum er mikilvæg og teymisfundir haldnir reglulega varðandi þá einstaklinga sem fjölþættasta þjónustu þurfa.







