
Nafn
Hulda Björnsdóttir
Netfang
huldabjorns@bjarg.is
Aðrar upplýsingar
Hulda er fædd árið 1968, gift og fjögra barna móðir. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi 1987 og BS í iðjuþjálfunarfræðum frá HA 2001.
Hulda hóf störf á Bjargi 2008 en starfaði áður hjá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 2001-2008 á hinum ýmsu deildum (lyflækningadeild, bæklunardeild, öldrunardeild og barnadeild). Hulda vann í Greiningarteymi barnadeildar FSA á meðan það starfaði, við að leggja mat á þroska og færni barna.
Sérstakt áhugasvið Huldu er skynúrvinnsla barna, að vinna með börnum og efla færni þeirra við athafnir, verklega sem og félagslega.
Hulda situr nú í stjórn Gigtarfélags Íslands Norðurlandsdeild.







