
Nafn
Unnur Pétursdóttir
Netfang
unnur@bjarg.is
Aðrar upplýsingar
Unnur er fædd 1966, gift og þriggja barna móðir. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1986, BS í sjúkraþjálfun frá HÍ 1991, og MS í heilbrigðisvísindum frá HA 2009. Unnur hlaut sérfræðiviðurkenningu í gigtarsjúkraþjálfun frá Landlæknisembættinu árið 2011.
Unnur starfaði hjá Gigtarfélagi Íslands 1996-2002, Landspítala Kópavogi 1993-1995, Landspítala hjartaeiningu 1991-1993 og sem aðstoðarmaður sjúkraþjálfara á Grensásdeild Borgarspítalans 1986-1989.
Unnur hóf störf á Bjargi 2002.
Sérstakt áhugasvið Unnar eru gigtarsjúkdómar og meðferð þeirra.
Unnur var formaður Gigtarfélags Íslands Norðurlandsdeild eystra frá 2003-2010 og formaður Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara 2001-2002. Hún er nú formaður Norðurlandsdeildar Félags Íslenskra Sjúkraþjálfara.
Unnur hefur kennt á námskeiðum á vegum Gigtarfélags Íslands varðandi ýmsa gigtarsjúkdóma og á námskeiðum og fræðslufundum hjá Norðurlandsdeild Gigtarfélags Íslands. Auk þess hefur hún haldið fyrirlestra á innlendum og erlendum ráðstefnum sjúkraþjálfara og skrifað í og ritrýnt fyrir alþjóðleg vísindatímarit.







